English

Reykjavik Internet Marketing Conference ráðstefnan (RIMC) er nú haldin í níunda sinn, 9. mars 2012.

Eins og áður koma til sögunnar virtir og eftirsóttir fyrirlesarar sem koma flestir fram fyrir hönd ráðandi risafyrirtækja á heimsvísu, hvert á sínu sviði. Þar má til dæmis nefna aðila frá Facebook, Wall Street Journal, AOL, SAP, Hotels.com og fl.

Ráðstefnan er haldin af Nordic eMarketing, sem er ráðgjafafyrirtæki á sviði markaðssetningar á internetinu. Fyrirtækið hefur um árabil komið sér upp yfirsýn, sérhæfingu og tengslaneti sem gerir því kleift að stýra verkefnum af öllum gerðum og flækjustigum fyrir allar stærðir fyrirtækja og stofnana.

Fyrirtækið hefur m.a. haslað sér völl í leitarvélabestun (SEO), rafrænni fréttamiðlun (ePR), greiddum leitarniðurstöðum (PPC) og margtyngdri aþjóðamarkaðssetningu.

bóka

Skoðaðu RIMC á félagsmiðlum

RIMC on Twitter RIMC on Flickr RIMC on YouTube