English

Reykjavik Internet Marketing Conference ráðsstefnan (RIMC) er nú haldin í fimmta sinn. 12 Mars 2010.

Eins og áður koma til sögunnar virtir og eftirsóttir fyrirlesarar sem koma flestir fram fyrir hönd ráðandi risafyrirtækja á heimsvísu, hvert á sínu sviði. Þar má til dæmis nefna Allen Mccaskill (Ericsson), Gene Ehrbar (Anomaly), Ashley Friedlein (Econsultancy), Jenny Leahy (Microsoft/Bing) og margir fleiri.

Nordic eMarketing er ráðgjafafyrirtæki sem veitir þjónustu í markaðssetningu á internetinu. Fyrirtækið hefur um árabil komið sér upp yfirsýn, sérhæfingu og tengslaneti sem gerir því kleift að stýra verkefnum af öllum gerðum og flækjustigum fyrir allar stærðir fyrirtækja og stofnana.

Fyrirtækið hefur m.a. haslað sér völl í leitarvélabestun (SEO), rafrænni fréttamiðlun (ePR), greiddum leitarniðurstöðum (PPC) og margtyngdri aþjóðamarkaðssetningu.

Tilbaka